Við þurfum öfluga og kraftmikla forystu

Ég hef eiginlega alltaf haft mikinn áhuga á hag vinnandi fólks. Að við sem leggjum okkar af mörkum til samfélagsins með vinnuframlagi alla starfsævina, búum við öryggi, góð lífskjör og getum byggt börnunum okkar bjarta framtíð. Við getum með samstöðu og áræðni haft áhrif á samfélagið og hvernig gæðunum er skipt.

Við þurfum öfluga og kraftmikla forystu til að leiða VR inn í framtíðina. VR er geysilega sterkt félag sem sameinar fólk í fjölbreyttum störfum og atvinnugreinum.

Með afli sínu og samstöðu á félagið að vera leiðandi í að tryggja kjarabætur og réttindi með hagsmuni allra félagsmanna að leiðarljósi. VR á að hafa sterka rödd í samstarfi innan verkalýðshreyfingarinnar og veita stjórnvöldum þétt aðhald í efnahags- og velferðarmálum.  

Félag fyrir okkur öll

Verkefnin blasa við

Það blasa við verkefni á öllum sviðum sem verður skemmtilegt að ráðast í með samhentum hópi og breiðri samstöðu. VR hefur þegar tekið ákveðna forystu í húsnæðismálum sem byggja þarf á til áframhaldandi uppbyggingar. Á breyttum vinnumarkaði þurfum við að halda áfram að treysta margvísleg félagsleg réttindi, tryggja afkomuöryggi og að félagsmenn njóti öryggis í sínum daglegu störfum og þegar veikindi og slys bera að höndum.

VR er félagið okkar allra og það á að hafa hagsmuni okkar allra að leiðarljósi í öllu sínu starfi og um leið eigum við að hugsa hvert um annað. Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða málefni barnafólks eða okkar eldri félaga. Við saman berum ábyrgð hvert á öðru og eigum að hafa það í huga alltaf og alla daga.

Forganga VR í húsnæðismálum

Mér finnst forganga VR í húsnæðsmálum hvort sem horft er til Bjargs eða Blævar hafa verið frábær og sýnt vel hverju samstaða og einbeittur vilji getur skilað. Ég sat um tíma í varastjórn Bjargs og kynntist aðferðafræðinni sem ég held að byggingarmarkaðurinn almennt geti lært mikið af. Við eigum að byggja áfram á þessari reynslu og leggja okkar af mörkunum til þess að koma á heilbrigðum húsnæðismarkaði hér á landi.

Fjölbreytt atvinnulíf

Við þurfum að tryggja fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir öll og gæta þess að tæknibreytingar af margvíslegu tagi verði til að bæta lífsgæði en ógni ekki afkomu og atvinnutækifærum fólks. Við þurfum líka að laga okkur að þeim breytta veruleika sem loftslagsbreytingar kalla yfir okkur og tryggja að hagsmunir og réttindi launafólks séu varin í þeim umbreytingum. Aðgengi og tækifæri til sí- og endurmenntunar er þar lykilþáttur. Margar áskoranir fylgja síbreytilegum vinnumarkaði og við þurfum að vera stöðugt á varðbergi til að bæta hag og treysta réttindi félagsmanna.